Nú skal borið í bætiflákann

28.04.2007 18:52:58 / raggirisi

Jahérna

 

Það hefur nú margt sérkennilegt á daga mína drifið síðan síðast . Það átti sér stað hér eitt kveldið í vikunni að ég hafði verið að snurfusa í eldhúsinu, vaska upp og slíkt sem fylgir því að vera heimilisfaðir. Eitthvað fór það forgörðum hjá mér að fara út með ruslapokann og sat hann því sem fastast við útidyrnar er ég fór í háttinn. Er ég hafði legið í lokrekkju vorri drykklanga stund heyrði ég eitthvert þrusk hér frammi en veitti því litla athygli og snéri mér á hina hliðina. Þegar ég svo kom fram morguninn eftir og kveikti ljósið skaust kattaróféti framhjá mér og útum gluggann. Ruslapokinn góði var í henglum og kjet og bein útum alla hreppa og sveitir. Hugsaði ég ófétinu þegjandi þörfina og var all argur.

 

Svo var það annað kveld í þessari sömu viku að við félagarnir höfðum pantað okkur flatböku og er ég hélt til náða var pizzukassinn á stofugólfinu með 2-3 sneiðum innvortis. Ég hafði nú legið í rekkju minni í u.þ.b hálfa klukkustund og var að festa svefn er ég hrökk upp við eitthvert andskotans þrusk og klafs frammi í stofu. Eitthvað var ég illa fyrirkallaður þarna í miðjum svefndrunganum og var ekki alveg að átta mig á atburðarrásinni. Hafði legið í aðra drykklanga stund er þeirri hugsun skaut upp í mínum snoðkolli að líklega væri þetta kattarófétið. Tók þá ákvörðun í mikilli yfirvegun að liggja rólegur og hlera hvort ófétið myndi ekki koma sér út. En er ég hafði hálf rænulaus legið og hlerað í tvö kortér ákvað ég að dandalast fram og hrekja kvikyndið á brott. Læddist fram á nærhaldinu einu fata og kveikti ljósið sposkur á svip og gerði þá ráð fyrir að kattarskömmin skytist millum fóta mér. Svo var nú aldeilis ekki og ekkert bólaði á kviku lífi. Skundaði ég framm í stofu og sá hvar pizzukassinn lá afvelta á gólfinu og sneiðarnar er voru þeim innvortis fyrr um kveldið lágu upp um títtnefndar sveitir og hreppa. Leit ég þá út um gluggann og sá hvar ófétið stóð uppi á svalagrindverkinu. Hugsaði ég helvítinu þegjandi þörfina og ákvað það innra með mér að skyldi ég finna þetta óféti í fjöru skyldi ég hamfletta andskotann og hengja haminn á þvottasnúruna. Hef nú ekkert séð þetta kvikyndi síðan

 

Í dag er búinn að vera þessi brakandi blíða eins og alþjóð veit og hef ég ekki setið auðum höndum í dag. Skrapp á Skeljung og fékk mér burger áður en ég fór með sjálfum Victori Pétri og rifjaði upp gamla takta með körfuboltann. Er heim var komið eftir þá sigurför ákvað ég að sýna samhug í verki og þrífa rúðurnar á íbúð vorri að utanverðu. Það var rándýrt, kostaði mig 2 Tuborg ískalda. En nú er skyggni ágætt útum stofugluggana og kann ég því afar vel.

 

Takk fyrir í bili

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 01:18:14 / raggirisi

Skagatá austan 19 hiti 2 stig

 

Það gerðist hér á dögunum að Steini vinur minn kom færandi hendi og sagðist vilja gefa mér gjöf, skrönglaðist hann inn í blokkina með últra-mega stórann kassa er innihélt glænýtt gasgrill.  Hann setti það saman og sagði að ég mætti eiga það.  Býsna veglegt og stórt grill og færi ég kallinum  bestu þakkir fyrir.  Í gærkveld var svo komið að jómfrúargrillstund.  Þá dugar sko ekkert að grilla gamlar SS pylsur, svo það var fjárfest í einu stykki suaðfjárlöpp.  Steini sá að mestu um grillmennskuna enda hagvanur kokkur frá því í ástandinu í gamla daga.  Halli Gunn lagði á borð og vaskaði upp á eftir.  En ég sá bara um það að éta og lét vel af matnum.  Þá var auðvitað smellt í sig nökkrum vel völdum köldum og horft á eina snilldar mynd, Kung Pow.  Algjörlega mannskemmandi fyndin mynd.  Síðar þetta títtnefnda kvöld var svo skundað yfir til Einars Trausta sem hélt uppá 25 ára afmæli sitt.  Allt löðrandi í bollu þar og menn urðu mongólískir af ölvun.  Komið heim milli 4 og 5 í nótt.  Fólk var á einu máli um að ég ætti brandara kvöldsins, þegar ég fór að velta því upp í umræðunni hvort skíðamenn svæfu í svigrúmi.  Átti svosem ekkert að vera fyndið, meira svona vangaveltur um þjóðfélagsstöðuna.

 

Í dag skruppum við svo í nágrannabæinn og snæddum dýrindis kafbát á Kafbátastað þeirra Skipaskagamanna.  Er svo búinn að sitja einn hér í kvöld bara og hafa það náðugt, sötra 2-3 bjóra og hlusta á næturvaktina á Rás2.  Kl 01 eftir miðnætti ómuðu svo veðurfregnirnar í viðtæki tölvu minnar.  Það er eitthvað svo kósý og notalegt að heyra þulinn þylja upp þokufregnir frá Mánárbakka, Hornbjargsvita og fleiri stöðum

 

Var að velta því fyrir mér hvort það tíðkaðist hér á landi að eiga emúa sem gæludýr 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:46:15 / raggirisi

Hádeyða

Þar kom að því takk fyrir túkall.  Maður er búinn að liggja í hálfgerðu móki síðan leikritinu lauk.  Ekki gert nokkurn skapaðan hlut og legið í kör á kvöldin.  "Valdi er í heflinum, úlpunni og treflinum.  Ekki beint í skýjunum, yfir takinu í bakinu"  söng Spilverk þjóðanna hér um árið.  Ég er nú ekki í úlpunni og því síður í heflinum, en ég er ekki í skýjunum yfir takinu í bakinu.  En það hlýtur nú að lagast fyrir þrítugt, styttist reyndar óheyrilega í þann verknað. 

 Staðan í augnablikinu er sú að ég er á leið til London og Parísar í byrjun júní að hitta Carmen, ætlum að eyða þar saman tæpri viku og svo annarri viku saman hér á Fróni.  Er vonandi að selja Skódann minn, og hyggst ég nota það fé er ég fæ fyrir hann í að innrétta baðherbergið o.fl.  Þá gerðist það í gær að ég er nánast búinn að ráða mig í vinnu.  Er að fara starfa á sambýlinu her í Borgarnes, allavega í sumar og líklegast lengur.  Sagði upp starfi mínu hjá VV flutningum í dag og er ég nokkuð ánægður með þennan ráðahag.  Verður gaman að komast í meira "lifandi" vinnu með strákunum á sambýlinu

 

Annars er bara ekkert að frétta

Yfir og út 


» 6 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Misvirkir bloggarar